Nú eru jólin búin, þegar ég pæli í því
þá líður þetta alltaf jafn hratt hjá. Ég, mamma og
Pabbi, Sæunn og Gummi og svo litla snúllann mín hún Kristrún
Erla voru hjá mér um jólin. Hildur var með sínu fólki í
Keflavík, þau höfðu það mjög gott. Ekki slæmt að hafa
gott fólk að, Bjöggi bróðir, Magga og strákurinn þeirra
voru í bænum hjá foreldrum Möggu.
Jæja tölum nú um pakkana
hehe... Hildur mín
fór heldur betur yfirum þessi jólin og gaf mér PSP nýju
leikjatölvuna, leik og nærföt. Þetta var rosalega flott gjöf,
hún veit hvað kjellinn vill, takk ástin
mín 
Svo gáfu foreldrar mínir mér Teppi, koddaver og
pífulak yfir nýja rúmmið mitt, það er rosalega stórt og þess
vegna frekar dýrt að fá svoleiðis, en þau redduðu mér heldur betur
takk takk...
Svo fékk ég alskonar gjafir frá Sæju og Gumma,
Bjögga bróður og möggu, ömmunum mínum, tengdarforeldrunum mínum...
Þetta var rosalega gaman. Ég er mjög þakklátur til þeirra
allra
Við héldum litlujólin hér í Vesturvörinni í
Kópavogi í gær. Sóley, Marta og Toni komu til okkar og héldu með
okkur smá litlujól. Það bættist við hjá okkur nýr meðlimur á
heimilið, þ.e.a.s. lítill kisi. Við gáfum Danný lítinn ketling...
Hún er enþá að ákveða hvað skal kalla hann, eða hana(þetta er læða)
en hún var mjög ánægð með kvikindið.
Eitt í lokin, má ekki bjóða ykkur VW Polo???? er
að selja einn slíkann, látið það berast 